Til að fylgja réttum leiðbeiningum fyrir Outlook þá er best að vita hvaða útgáfu þið eruð með. Þið finnið það út með því að fylgja leiðbeiningunum hér að neðan.
Byrjaðu á því að Opna Outlook. Það fer eftir útgáfum hvernig viðmót þú færð. Hér má sjá þau helstu:
- Ef þú færð yfirlit sem lítur svona út smelltu þá á "Help" og veldu "About Microsoft Outlook". Þá opnast gluggi sem segir þér hvaða útgáfu af Outlook þú ert með.
- Ef yfirlitið efst lítur meira svona út smelltu þá á Office logoið efst og veldu "Help". Þar ætti að koma skilaboð um hvaða útgáfu af Outlook þú ert með.
- Ef yfirlitið lítur svona út smelltu þá á "File" og svo á "Help" og þá birtist gluggi sem segir þér hvaða útgáfu af Outlook þú ert með.
- Ef yfirlitið lítur svona út smelltu þá á "File" og svo "Office Account". Þar ætti að koma fram útgáfan (2013).