Ef sjálfvirka uppsetningin fyrir Windows 8 virkar ekki þá gæti þurft að setja upp eduroam tenginguna handvirkt eins og sýnt er hér að neðan. En við mælum eindregið með því að notendur notist við sjálfvirku uppsetninguna: Sjálfvirk uppsetning á eduroam
Rótarskírteini sett inn:
Fyrst þarf að byrja á því að sækja og setja inn rótarskírteini HÍ í tölvuna.
1) Smellið hér á takkann fyrir neðan til að sækja rótarskírteinið:
2) Opnið skránna sem þið sóttuð hér að ofan þá opnast þessi gluggi. Smellið á "Open":
3) Smellið því næst á "Install Certificate":
4) Merkið við "Local Machine" og smellið á "Next" (Nú gæti komið upp öryggistilkynning frá Windows. Smellið þá á "Yes".):
5) Merkið við "Place all certificates in the following store" og smellið því næst á "Browse":
6) Finnið "Trusted Root Certification Authorities", merkið við það og smellið á "OK". Þá ætti glugginn sem er eftir að líta út eins og myndin hér að ofan (skref 5). Smellið þá á "Next" í þeim glugga:
7) Smellið því næst á "Finish":
8) Þá ætti þessi gluggi að koma upp sem segir ykkur að rótarskírteinið er komið á vélina. Smellið á "OK" og aftur á "OK":
Eduroam sett upp:
Nú þegar rótarskírteinið er komið inn að þá getum við byrjað á því að fara setja upp eduroam tenginguna handvirkt. Það er gert svona:
9) Fyrst þurfum við að opna "Network and Sharing Center". Það er t.d. gert með því að fara í "Start" valmyndna og byrjum að skrifa "Network and Sharing Center" og smellum svo á það þegar það birtist í listanum. Einnig er hægt að hægri-smella á net-táknið neðst til hægri á skjáborðinu og velja þar "Network and Sharing Center":
10) Smellið á "Set up a new connection or network":
11) Smellið hér á "Manually connect to a wireless network" og því næst á "Next". Ef þið sjáið ekki þennan möguleika þá gangið úr skugga um að kveikt sé á þráðlausa netkortinu.
12) Setjið inn eftirfarandi upplýsingar:
- Network name: eduroam
- Security type: WPA2-Enterprice (WPA2)
- Encryption type: AES
- Hakið við "Start this connection automatically"
Smellið því næst á "Next":
13) Smellið á kassann "Change connection settings":
14) Hakið við "Connect automatically when this netowrk is in rage". Smellið því næst á "Security" flipann:
15) Gangið úr skugga um að allar stillingar eru sem hér segir:
- Security type: WPA2-Enterprise
- Encryption type: AES
- Network authentication: Microsoft: Protected EAP (PEAP)
- Hakið svo við "Remember my credentials..."
Smellið því næst á "Settings":
16) Í þessum glugga gerum við eftirfarandi:
- Hakið við "Verify the server's identity by validating the certificate"
- Hakið við "Connect to these servers..."
- Skrifið í reitinn þar fyrir neðan: edurad1.rhi.hi.is;edurad2.rhi.hi.is
- Finnið í listanum og hakið við: University of Iceland Certificate Authority
Smellið því næst á "Configure...":
17) Gangið úr skugga um að ekki sé hakað í boxið. Smellið því næst á "OK"
18) Smellið síðan á OK aftur til að fá upp gluggann aftur hér að neðan.
19) Smellið á "Advanced settings":
20) Hakið við "Specify authentication mode" og veljið í flettilistanum "User or computer authentication". Smellið á "Save credentials"::
21) Setjið inn fullt netfang (með @hi.is) og lykilorð (það sama og í Uglu) og smerllið á "OK":
22) Smellið á OK þrisvar og lokið svo"Manually connect to a wireless network" með því að smella á "Close":
23) Nú er eduroam tilbúið. Næst þegar þú ert staðsett(ur) þar sem eduroam er í boði þá tengið þið tölvuna eins og sýnt er hér í skrefi 7 og áfram: Eduroam fyrir Windows 10