Fastar IP tölur - Windows 8

Til að festa IP tölu í Windows 8 þá skal fylgja eftirfarandi leiðbeiningum.

1) Smellið á Windows takkann á lyklaborðinu eða farið með bendilinn neðst
til vinstri og smellið til að komast í "Start" valmyndina.

2) Byrjið strax að skrifa "network" og veljið því næst "Settings" hægra megin á skjánum. Finnið síðan í listanum vinstra megin "Network and Sharing Center" og smellið á það.

Network and Sharing Center

 

3) Smelltu á "Change adapter settings" sem er að finna vinstra megin í Network and Sharing Center glugganum.

Network and Sharing Center

4) Hægrismelltu á "Local Area Connection" og veldu "Properties"

Hægrismelltu á Local Area Connection

5) Smelltu nú á "Internet Protocol Version 4" og því næst á "Properties"

Local Area Connection Properties

6) Hér setjum við upp IP töluna. Hökum við "Use the following IP address" og "Use the following DNS server address".

Þú ert væntanlega búinn að fá úthlutaðri IP tölu eftir að þú sóttir um hana. Við IP address setur þú inn þá tölu sem þú fékkst úthlutað.

Þú fyllir síðan í Subnet mask (oftast 255.255.255.0) og Default gateway (oftast 130.208.sama_og_í_3_reit_IP_addressu.254).

Síðan setur þú inn fyrir "Preferred DNS server" 130.208.165.82 og loks fyrir "Alternate DNS server" 130.208.165.87.

Internet Protocol (TCP/IP) Properties

7) Smellið nú á "OK" og aftur "OK" og nú er netkortið uppsett með fastri IP tölu.