Teams er hópvinnukerfi, þar er hægt að búa til samvinnuhópa, vinna að verkefnum, spjalla um daginn og veginn, deila skjölum og halda fundi.
1) Hægt er að skrá sig inn á Teams í vafra með því að skrá sig inn á office.hi.is og velja þar teams merkið undir apps efst á síðunni:
2) Þá er komið inn í Teams umhverfið á vefnum. Hægt er að nota Teams á vefnum eða setja upp Teams hugbúnað á tækið sem þú ert að nota. Uppi í hægra horninu ættuð þið að sjá mynd af ykkur (eða upphafstafi ef þið hafið ekki enn sett inn mynd). Smellið á myndina og veljið „Download the desktop app“ eða „Download the mobile app“ eftir hvort þið eruð í tölvu eða síma:
3) Á stikunni vinstra megin er að finna ýmsa möguleika sem eru í boði.
- Virkni (Activity): Listi yfir alla hreyfingu tengdri þér á Teams
- Spjall (Chat): Einkaspjall við einn eða fleiri aðila
- Hópar (Teams): Hóparnir þínir, hópspjall og skjöl
- Verkefni (Assignment): Verkefnavinna með bekk
- Dagbók (Meetings): Dagbók og fundarbókanir
- Símtöl (Calls): Símkerfi, sést bara þar sem það hefur verið innleitt
- Stream: Myndbönd sem hafa verið vistuð. T.d. af vistuðum fundarhöldum innan Teams.
- Skrár (Files): Skrár úr hópum og af OneDrive