Teams spjall - Chat flipinn

Hægt er að spjalla við einn eða fleiri í Teams undir Chat. Ef þegar er til hópur í kringum verkefnið sem spjalla á um eða ef senda á fyrirspurn á hóp sviðs eða deildar er betra að fara beint í spjall þess hóps undir „Teams“. 

Chat flipinn er meira hugsaður sem spjall við einn eða nokkra sem ekki eru með og þurfa ekki heilt Team-svæði.

1) Smellið á Chat á stikunni vinstra megin, því næst á blað og blýants merkið efst (sýnt hér í rauðum hring):
Hefja nýtt spjall

2) Þá getið þið byrjað að skrifa inn nöfnin á þeim sem þið viljið spjalla við og valið svo nafnið þegar það birtist á fellilistanum. Einnig birtast fyrri spjöll ef þeim var gefið nafn:
Leita að einstakling eða spjallhópum

3) Þannig getið þið átt spjall við einn eða fleiri í einu.

Þú getur (sjá númer á mynd): 

  1. Gefið spjallinu nafn
  2. Myndspjallað
  3. Hringt
  4. Deilt skjánum þínum
  5. Bætt nýju fólki inn í spjallið
  6. Deilt skjölum og séð skjöl sem hefur verið deilt í spjallið

Hvað er hægt að gera við einstaka spjall