Þú gætir lent í því að þurfa að nota við aðra auðkenningaraðferð en þú ert með sjálfgefna. Þá er nauðsynlegt að vera búin(n) að setja upp fleiri en eina aðferð og við mælum eindregið með því. Það er gert svona: Bæta við auðkenningaraðferðum
Ef þú vilt nota aðra aðferð en þú ert með sjálfgefna þá er ferlið svona:
1) Skráðu þig inn með því að setja inn netfang og smella á „Áfram“:
2) Sláðu inn aðgangsorð og smelltu á „Áfram“:
3) Smellið hér á „Ég get ekki notað [sjálfgefna leiðin gefin upp hér]“:
4) Veldu þá leið sem þú vilt nota í staðinn fyrir sjálfgefnu leiðina sem er grálituð:
5) Þú ættir eftir þetta að fá SMS, símtal eða beiðni í auðkenningar-appið eftir því hvað þú velur hér að ofan.