Proxy stillingar í Internet Explorer

Svona stillir þú proxy stillingar í Internet Explorer:

1) Opnaðu Internet Explorer.

2) Þar smellir þú á "Tools" (eða tannhjólið lengst til hægri) og velur þar "Internet Options":
Internet options

3) Þá opnast gluggi sem sjá má hér að neðan.
4) Smelltu á Connections flipann.
5) Smelltu því næst á "LAN Settings":
6) Hakaðu við "Use a proxy server for your LAN..."
7) Í Address skrifar þú: proxy.rhi.hi.is
8) Í port skrifar þú: 8080
9) Smelltu því næst á "OK"

 

Internet Options - Local Area Network (LAN) Settings

ATH ef þú vilt taka proxy stillingar af sleppir þú skrefum 5-7 og tekur öll hök í burtu í þessum glugga og smellir á OK.