Notendur sem treysta Upplýsingatæknisviði fyrir tækjum sínum, gögnum og gagnavinnslu ættu að kynna sér þau viðmið sem UTS notar.
Tæki
Starfsfólk UTS leitast við að lagfæra tæki notenda á sem skilvirkastan hátt og án þess að hrófla við gögnum og stillingum tækisins. Starfsfólkið fær reglulega þjálfum í meðferð tækja og fylgir tilteknum vinnureglum í meðferð þeirra.
- UTS ráðleggur notendum að taka reglulega afrit af gögnum tækja sinna og reiknar með að notendur hafi gert það áður en komið er með tæki til athugunar.
- UTS ber ekki ábyrgð gögnum tækja notenda.
- UTS mun ekki skipta skemmdu tæki út fyrir nýtt.
- Notandi gæti verið beðinn um að gefa upp lykilorð tækis, en skal þá breyta því strax þegar hann fær tækið aftur.
- UTS setur ekki upp leyfisskildan hugbúnað án upprunalegra leyfa.
- UTS gæti þurft að skoða tiltekin gögn á tæki notanda.
Gögn
Þjónusta UTS miðar að því að þau gögn sem stofnunin geymir og vinnur fyrir notendur séu ávallt aðgengileg réttum aðilum óbrengluð. Öll miðlæg kerfi UTS eru rekin í vöktuðum, aðgangsstýrðum, brunavörðun, varaaflsvæddum rýmum. Öll miðlæg kerfi í umsjá UTS eru öryggisuppfærð skipulega. Öll gögn í umsjá UTS eru öryggisafrituð skipulega. Kerfisaðgangur að kerfum UTS er aðeins á höndum tiltekinna aðila. Tilraunir til innbrota eru vaktaðar.