Til að setja inn íslenskt villuleitartól í Office pakkann þá þarf að sækja „proofing tool“ á vef Microsoft. Það er gert svona:
1) Opnaðu vafra og farðu á þessa slóð (ef uppsetningin virkar ekki prófið þá hinn tengilinn):
- Office 365 (Office 2016) (Fylgið leiðbeiningum frá skrefi 2): Microsoft Office villuleitarverkfæri 2016 – íslenska
- Office 2016 sett inn hjá starfsfólki HÍ af UTS (keyrið skránna og farið á skref 4): Proofing tools - íslenska
2) Veldu þar íslensku í listanum og smelltu síðan á „Sækja“:
3) Hakið við rétta skrá hér. 86 er fyrir 32 bita Office og 64 er fyrir 64 bita Office og smellið á „Next“. Ef þú ert ekki viss um hvort þú ert með 32 eða 64 bita Office pakka þá eru hér leiðbeiningar hvernig þú kemst að því: Office 32 eða 64 bita.
4) Samykktu skilmála og smelltu „Yes“:
5) Ef Word eða annað Office skjal er opið lokið því til að klára uppsetninguna. Smelltu svo á „OK“:
6) Næst þegar þú opnar Word (eða önnur Office forrit) þá ætti íslenskan að vera sjálfvalin. Ef ekki þá smellið þið neðst á tungumálatakkann og veljið íslensku: