Þessi Office 365 uppsetning inniheldur Outlook, OneDrive, Word, Excel, PowerPoint, OneNote, Planner, Access og Skype for business. Hér er sýnt hvernig þú nærð í hugbúnaðinn og setur hann upp á Windows 10.
1a) Farðu á office365.hi.is og sláðu inn HÍ netfangið þitt:
1b) Sláðu nú inn lykilorðið þitt og smelltu á „Sign in“:
2) Smelltu á „Install Office apps“:
3) Smelltu á „Office 2016“:
4) Næst þarftu að keyra upp skrána, það er örlítið mismunandi milli vafra hvar og hvernig skráin birtist. Opnaðu skrána:
5) Upp kemur öryggisviðvörun. Smelltu á „Yes“ til að halda áfram:
6) Nú þarf að leyfa uppsetningunni að klárast. Það tekur um 10-20 mínútur:
7) Þá eru forritin komin inn á tölvuna og má loka glugganum með því að smella á „Close“:
Til eru leiðbeiningar fyrir notkun á hverju forriti fyrir sig. Nálgast má þær leiðbeiningar hér: Office 365