Teams fjarfundir fyrir Uglunámskeið

Nú geta kennarar búið til Teams fjarfundi fyrir námskeiðin sín á mjög einfaldan hátt. Þannig geta þeir boðað alla nemendur, ákveðna hópa af nemendum og jafnvel bara kennara á hverju námskeiði á fjarfund í tveim skrefum.

1) Smelltu á Teams táknið við námskeiðið á forsíðu Uglunnar:

Smelltu á Teams táknið

 

2) Þá opnast þetta form þar sem þú ákveður titil, hvenær fundurinn er og hverjir eiga að fá fundarboð. Smellið því næst á „Senda fundarboð“:

Fyllið í formið og smellið á Senda

 

3) Þeir sem boðaðir eru á fundinn fá tölvupóst með tengli á fjarfundinn. Viðkomandi getur einnig svarað því hvort hann komist á fundinn eða ekki. Allir sem boðaðir eru á fund sjá hann einnig í Office dagbókinni sinni og þar er einnig tengill á fjarfundinn.

Hér má lesa nánar um Teams fjarfundi: Teams - fjarfundir