Finna MAC addressu fyrir vírað net - MacOs

Til að finna MAC addressu fyrir vírað net (t.d. Garðanet) í MacOs Leopard þarf að fylgja eftirfarandi skrefum.

1. Smellið á Eplið og veljið þar "System Preferences".

Epli - System Preferences

2. Tvísmellið hér á "Network".

System Preferences - Network

3. Smellið á "Built-in Ethernet" og svo "Advanced".

Network - Built in Ethernet - Advanced

4. Smellið á Ethernet flipann. Hér finnið þið MAC addressu Ethernet netkortsins og kallast hún "Ethernet ID".

Ethernet ID

5. Þegar MAC addressan er fundin þarf að skrá hana í Ugluna. Hér má sjá nánar hvernig þið sækið um Garðanetið eða IP tölu.