Fastar IP tölur - Windows 10

Til að festa IP tölu í Windows 10 þá skal fylgja eftirfarandi leiðbeiningum.

1) Opnaðu "Network and Sharing Center". Það getur þú t.d. gert með því að hægrismella á net-íkonið neðst til hægri á tækjastikunni og velja þar "Network and Sharing Center":

Open Network and Sharing Center

2) Smelltu á "Change adapter settings" sem er að finna vinstra megin í Network and Sharing Center glugganum:
Network and Sharing Center

3) Hægrismelltu á "Local Area Connection" og veldu "Properties":
Hægrismelltu á Local Area Connection

4) Smelltu nú á "Internet Protocol Version 4" og því næst á "Properties":
Local Area Connection Properties

5) Hér setur þú upp IP töluna. Hakaðu við "Use the following IP address" og "Use the following DNS server address".

Þú ert væntanlega búinn að fá úthlutaðri IP tölu eftir að þú sóttir um hana. Við "IP address" setur þú inn þá tölu sem þú fékkst úthlutað.

Þú fyllir síðan í Subnet mask (oftast 255.255.255.0) og Default gateway (oftast 130.208.sama_og_í_3_reit_IP_addressu.254).

Síðan setur þú inn fyrir "Preferred DNS server" 130.208.165.82 og loks fyrir "Alternate DNS server" 130.208.165.87:
Internet Protocol (TCP/IP) Properties

6) Smelltu nú á "OK" og aftur "OK" og nú er netkortið uppsett með fastri IP tölu.