eduroam - handvirkar leiðbeiningar fyrir Windows 7

Ef sjálfvirka uppsetningin fyrir Windows 7 virkar ekki þá gæti þurft að setja upp eduroam tenginguna handvirkt eins og sýnt er hér að neðan. En við mælum eindregið með því að notendur notist við sjálfvirku uppsetninguna: Eduroam fyrir Windows 7

 

Rótarskírteini sett inn:

Fyrst þarf að byrja á því að sækja og setja inn rótarskírteini HÍ í tölvuna.

1) Smellið hér á takkann fyrir neðan til að sækja rótarskírteinið:

Sækja skrá

 

2) Merkið við "Open with" og smellið því næst á "OK":

 

3) Smellið því næst á "Open".

 

4) Smellið því næst á "Install Certificate":

 

5) Smellið á "Next":

 

6) Merkið við "Place all certificates in the following store" og smellið því næst á "Browse":

 

7) Finnið "Trusted Root Certification Authorities", merkið við það og smellið á "OK".

 

8) Þá ætti að standa: "Trusted Root Certification Authorities". Ýtið á "Next".

 

9) Ýtið á "Finish".

 

10) Þá kemur tilkynning um að þetta hafi tekist. Ýtið á "OK".

 

11) Þá kemur öryggisviðvörun. Ýtið á "Yes"

 

 

 

Eduroam sett upp:

Nú þegar rótarskírteinið er komið inn að þá getum við byrjað á því að fara setja upp eduroam tenginuna handvirkt. Það er gert svona:

 

12) Fyrst þurfum við að opna "Network and Sharing Center". Það er gert með því að hægri-smella á net-táknið neðst til hægri á skjáborðinu og velja þar "Network and Sharing Center":

 

13) Smellið á "Manage Wireless Networks". Ef þið sjáið ekki þennan möguleika þá gangið úr skugga um að kveikt sé á þráðlausa netkortinu.

 

14) Smellið hér á "Add" 

 

15) Smellið á "Manually create a network profile"

 

16) Setjið inn eftirfarandi upplýsingar:

  • Network name: eduroam
  • Security type: WPA2-Enterprice (WPA2)
  • Encryption type: AES
  • Hakið við "Start this connection automatically"

Smellið því næst á "Next":

 

17) Smellið á kassann "Change connection settings":

 

18) Gangið úr skugga um að allar stillingar eru sem hér segir:

  • Security type: WPA2-Enterprise
  • Encryption type: AES
  • Network authentication: Microsoft: Protected EAP (PEAP)
  • Hakið svo við "Remember my credentials..."

Smellið því næst á "Settings":

 

19) Í þessum glugga gerum við eftirfarandi:

  • Hakið við "Validate server certificate"
  • Hakið við "Connect to these servers:"
  • Skrifið í reitinn þar fyrir neðan: edurad1.rhi.hi.is;edurad2.rhi.hi.is
  • Finnið í listanum og hakið við: University of Iceland Certificate Authority

Smellið því næst á "Configure...":

 

20) Gangið úr skugga um að ekki sé hakað í boxið. Smellið því næst á "OK"

 

21) Smellið síðan á OK aftur til að fá upp gluggann aftur hér að neðan.

22) Smellið á "Advanced settings":

 

23) Hakið við "Specify authentication mode" og veljið í flettilistanum "User or computer authentication". Smellið því næst á "OK":

 

24) Smellið á OK tvsivar og lokið svo"Manually connect to a wireless network" með því að smella á "Close":

 

25) Nú er eduroam tilbúið. Næst þegar þú ert staðsett(ur) þar sem eduroam er í boði þá tengið þið tölvuna eins og sýnt er hér:

 

Vélin tengd við þráðlausa netið - eduroam

26) Til að tengjast ýtir þú á netmerkið niðri í hægra horninu og velur eduroam og "Connect".

 

27) Þá ertu beðin um auðkenningu, settu allt HÍ tölvupóstfangið þitt í efri reitinn og lykilorðið þitt í neðri og ýttu á "OK". Þá ætti tenging við eduroam að nást.

 

Vinsamlegast leitið til tölvuþjónustunnar Háskólatorgi eða Hamri ef þið lendið í vandræðum með að tengjast eftir að uppsetningu er lokið eða ef þið náið ekki að klára uppsetninguna.