Öryggisafritun í OneDrive

OneDrive-forritið býður upp á þann innbyggða möguleika að taka sjálfvirkt afrit af Desktop, Documents og Pictures möppunum yfir á OneDrive-skýið. Athugið að afritunin tekur allt sem er í möppunum og ekki er hægt að velja einstakar skrár.

Til að virkja þann möguleika þá þarf að framkvæma eftirfarandi skref:

 

1) Hægrismellið á OneDrive skýið

 

2) Smellið svo á Help & Settings.

 

3) Veljið Backup í glugganum sem birtist og í framhaldi smellið á Manage backup

 

4) Veljið Desktop, Documents og/eða Pictures til að taka afrit af. Að vali loknu er smellt á Start backup til að hefja sjálfvirku afritunartökuna.