Stillingar netkorts fyrir vírað net - Windows Vista

Til að tölvan geti tekið við IP tölum frá UTS í Windows Vista þá þarf að stilla netkortið eins og hér er sýnt. Þetta á t.d. við um Garðanetið.

1. Hægrismelltu á táknið fyrir nettengingu sem er að finna neðst í hægra horninu. Veldu þar "Network and Sharing Center".

Hægrismella á Network Connections

2. Smelltu á "Manage network connections" sem er að finna vinstra megin í Network and Sharing Center.

Network and Sharing Center

4. Hægrismelltu á "Local Area Connection" og veldu "Properties"

Hægrismelltu á Local Area Connection

5.Smelltu nú á "Internet Protocol Version 4" og því næst á "Properties"

Local Area Connection Properties

6.Hér þarf að ganga úr skugga um að hakað sé við "Obtain an IP address automatically" og einnig "Obtain DNS server address automatically"

Internet Protocol (TCP/IP) Properties

7. Smellið nú á "OK" og aftur "OK" og nú er netkortið tilbúið að taka við IP tölu frá UTS.