Gott er að mappa heimasíðusvæðið sér ef maður á annað borð er að flytja gögn þangað til að lenda ekki í réttindavandamálum.
Hér er sýnt hvernig tengjast má heimasíðusvæði sitt með Windows 10.
Virkar einungis þegar notendur eru tengdir við Háskólanetið.
1) Smellið á Windows takkann á lyklaborðinu eða farið með bendilinn neðst til vinstri og smellið á Windows logoið.
2) Byrjið strax að skrifa "This PC".
3) Veljið "This PC" þegar það kemur upp í leitarniðurstöðum:
4) Smellið hér á "Map network drive". Ef þið sjáið það ekki þá smellið á litlu örina efst til hægri og þá ættu valmöguleikarnir að sjást:
5) Hér fyllir þú út formið:
- Drive: Drive bókstafurinn skiptir í raun ekki máli og þar getur þú valið þann staf sem þér þykir henta best. Gott er þó að venja sig á að nota alltaf sama staf fyrir sömu svæði, eins og t.d. W fyrir heimasíðusvæði (www).
- Folder: Í Folder skrifar þú: \\heima.rhi.hi.is\www Ef \\heima.rhi.hi.is\www er ekki að virka má prófa að nota \\130.208.165.111\www eða samba.rhi.hi.is\www
- Hakaðu við "Reconnect at sign-in" ef þetta er þín tölva og þú vilt að vélinn tengist svæðinu í hvert skipti sem þú skráir þig inn á vélina.
- Hakaðu við "Connect using different credentials" og smelltu á Finish.
6) Þegar þessi gluggi kemur þá smellið þið á "More choices" til að geta notað HÍ auðkenningu. Smellið síðan á "Use a different account":
7) Hér skrifar þú í "User name": CS\notandanafn (þitt HÍ notandanafn í staðinn fyrir notandanafn) og í password lykilorðið þitt. Hér er um að ræða sama notandanafn og lykilorð og inn á Uglu. Hakaðu við "Remember my credentials" ef þetta er þín tölva og þú vilt að hún tengist sjálfkrafa í framtíðinni og smelltu síðan á "OK":
Nú ættir þú að sjá heimasvæðið þitt eins og hvert annað drif í "This PC".