Gott er að mappa heimasíðusvæðið sér ef maður á annað borð er að flytja gögn þangað til að lenda ekki í réttindavandamálum.
Virkar einungis þegar notendur eru tengdir við Háskólanetið.
1) Smelltu á Windows logoið neðst til vinstri og þar skaltu hægrismella á "Computer" og velja þar "Map Network Drive":
2) Í Folder skrifar þú: \\heima.rhi.hi.is\www (eða \\130.208.165.10\www eða samba.rhi.hi.is\www).
Hakaðu við "Reconnect at logon" ef þú vilt að vélin tengist sjálfkrafa við næstu ræsingu.
(Drive bókstafurinn skiptir í raun ekki máli en gott að venja sig á að nota alltaf það sama eins og t.d. W):
Smelltu því næst á "Connect using a different user name":
3) Hér skrifar þú CS\notandanafn og lykilorð. Smellir síðan á "OK" og í lokin á "Finish". Að því loknu ættir þú að sjá www svæðið þitt eins og hvert annað drif í My Computer.