Gott er að mappa heimasíðusvæðið sér ef maður á annað borð er að flytja gögn þangað til að lenda ekki í réttindavandamálum.
Virkar einungis þegar notendur eru tengdir við Háskólanetið.
1) Smelltu á Windows logoið neðst til vinstri og þar skaltu hægrismella á "Computer" og velja "Map Network Drive".
2) Í Folder skrifar þú: \\heima.rhi.hi.is\www
Drive bókstafurinn skiptir í raun ekki máli og þar getur þú valið þann staf sem þér þykir henta best. Gott er þó að venja sig á að nota alltaf sama staf fyrir sömu svæði, eins og t.d. W fyrir heimasíðusvæði.
Ef \\heima.rhi.hi.is\www er ekki að virka má prófa að nota \\130.208.165.111\www eða samba.rhi.hi.is\www
Hakaðu við "Connect using different credentials" og smelltu á Finish.
3) Í glugganum sem kemur upp skaltu smella á "Use Another Account" ef það er í boði. Skrifaðu því næst í "User name": CS\notandanafn og í password lykilorðið þitt. Hér er um að ræða sama notandanafn og lykilorð og inn á Uglu. Hakaðu við "Remember my credentials" og smelltu síðan á "OK"
Nú ættir þú að sjá heimasíðusvæðið þitt eins eins og hvert annað drif í Computer og ættir að geta dregið gögn þar beint inn sem mundu samstundist sjást á heimasíðusvæðinu þínu.