Hér er sýnt hvernig þið setjið inn eduroam netstillingar í Ipad og Iphone.
1) Farið á aðalsíðuna (Home Screen)
2) Smellið á "Settings" táknið.
3) Smellið á "Wi-Fi".
4) Athugið hvort ekki sé örugglega kveikt á þráðlausa netinu. Ef ekki snertið þá "On/Off" takkann til að kveikja á þráðlauri tengingu. Takkinn á að sýna "On."
5) Veljið eduroam undir "Choose a Network". Það gæti tekið nokkrar sekúndur fyrir eduroam að birtast eftir að kveikt er á Wi-Fi.
6) Nú ættir þú að tengjast eduroam sjálfkrafa í hvert skipti sem eduroam er aðgengilegt. Ef þú ert beðin um notandanafn og lykilorð þá setur þú inn fullt netfang, notandanafn með @hi.is fyrir aftan og sama lykilorð og í Uglu.
Vinsamlegast leitið til tölvuþjónustunnar Háskólatorgi eða Hamri ef þið lendið í vandræðum með að tengjast eftir að uppsetningu er lokið eða ef þið náið ekki að klára uppsetninguna.