RHÍ Fréttir

nr. 27 desember 1995

  

  

Douglas Brotchie

Starfsmannabreytingar

Menn koma og menn fara.
Í síðasta fréttabréfi var sagt frá komu þriggja nýrra starfsmanna til stofnunarinnar, en nú fellur það í minn hlut að kveðja jafnmarga.

Þeir Árni Jónsson, Einar Indriðason og Kristján Gaukur Kristjánsson hafa ákveðið að freista gæfunnar á nýjum starfsvettvöngum. Þeir hafa allir starfað hjá stofnuninni í um það bil fjögur ár og unnið ötullega fyrir stofnunina á hinum ýmsu vígvöllum. Við þökkum samstarfið og óskum þeim öllum velfarnaðar í framtíðinni.

Ráðinn hefur verið nýr starfsmaður sem kemur til með að starfa á sama vettvangi og Einar hefur þjónað; nánari fregnir um þessa ráðningu og fleiri í næsta fréttabréfi.

  
Notendaþjónusta RHÍ,  16. febrúar 2000 

Efnisyfirlit Fyrri grein Önnur fréttabréf RHÍ