Að "mappa" heimasvæðið þýðir í raun að setja upp heimasvæðið sitt í tölvunni þannig að það sé aðgengilegt eins og hver annar harður diskur í vélinni. Þannig er auðvelt að vinna með skjöl beint af heimasvæðinu.
Hér að ofan og vinstra megin má sjá hvernig þið tengið heimasvæðin eftir stýrikerfum.
Til að geta tengst heimasvæðinu þarf vélin að vera tengd neti HÍ. Það þýðir í raun að vélin þarf að vera tengd á einn af eftirfarandi háttum:
- Tengd þráðlausa netinu í HÍ (eduroam)
- Tengd með kapli í byggingum HÍ (DHCP).
- Tengd Garðanetinu.
- Tengd með ADSL eða ljósleiðara (starfsmenn) sem fer í gegnum HÍ.
- Tengd með VPN-i (þetta er notað þegar ekkert af ofantöldu er til staðar)