Möppun á sameiginlegu svæði í Makka er framkvæmd með eftirfarandi hætti. Virkar einungis þegar notendur eru tengdir við Háskólanetið.
1) Smelltu á Go í aðalvalrönd og veldu connect to server:
2) Þá kemur upp gluggi og í server address er látin slóðin smb://sameign.rhi.hi.is/nafn_svæðis. (ATH að skrifa nafn á viðkomandi svæði þar sem stendur nafn_svæðis í slóðinni).
3) Næst er valið Connect og þá þarf að setja inn notendaupplýsingar. Undir Name er sett notandanafn og í password lykilorðið þitt (sama og notað er í Uglu).
Gera svæðið sýnilegt á skjáborði og á stiku
Til að sameiginlega svæðið sé sýnilegt eftir tengingu og auðvelt að nálgast það er gott að gera eftirfarandi stillingar:
4) Opnið Finder og smellið þar á "Finder" efst uppi og veljið "Preferences":
5) Smellið á "General" flipann. Undir "Show these items on desktop" hakið við "Connected servers". Þá verður svæðið sýnilegt á skjáborðinu:
6) Til að svæðið verði sýnilegt á stikunni þá smellið þið á "Sidebar" og hakið við tölvuna (nafn tölvunnar):