Opinn hugbúnaður

Hugbúnaður getur kostað mikla peninga og í sumum tilvikum er hægt að finna hliðstæðar opnar útgáfur af dýrum vinsælum hugbúnaði. Við ákváðum að telja hér upp nokkur vinsæl opin forrit sem hægt er að sækja sér. Þetta er ýmist frjáls, opinn og/eða frír hugbúnaður. Þetta er úrval af því sem við notum og mælum með:

 

ProjectLibre

ProjectLibre - ProjectLibre er opinn hugbúnaður sem svar við forritinu Microsoft Project. Það er ókeypis öllum og er orðið gífurlega vinsælt á meðal þeirra sem notast við "project" forrit. Hér má nálgast forritið: http://www.projectlibre.org/

 

Gimp

Gimp - Frjálst myndvinnsluforrit. Það má í raun kalla þetta ókeypis Photoshop. Hér er hægt að gera allt það sem flestir kunna í Photoshop. Gimp er til á íslensku.
http://www.gimp.org/ 

 

Irfanview

Irfanview - Lítið en öflugt forrit sem á auðveldan og notendavænan hátt sýnir myndir og jafnvel video.
http://irfanview.com/

 

PrimoPDF

PrimoPDF - Mjög vinsælt forrit sem breytir nánast hvaða skjali sem er í PDF skjal: http://www.primopdf.com/

 

PDF-creator

PDF-creator - lítið forrit sem býr til PDF skrár. Notast eins og prentari nema þú velur PDF-creator í staðinn fyrir prentara og þannig býr það til PDF skjal.
http://sourceforge.net/projects/pdfcreator/

 

VLC media player
 

VLC media player - Þessi spilari er einn sá vinsælasti í dag enda ekki furða þar sem hann spilar nær því allar tegundir af mynd- og hljóðskrám sem boðið er upp á í dag. UTS notar þennan spilara sem sjálfgefin spilara fyrir video í öllum tölvuverum.
http://www.videolan.org/

 

FreeMind

FreeMind - Forrit sem býr til hugarkort í svipuðum stíl og MindManager.
http://freemind.sourceforge.net/

 

XMind

XMind - Annað forrit sem býr til hugarkort. Grunn útgáfan er ókeypis en "Pro" útgáfan kostar.
http://www.xmind.net/

 

Zotero

Zotero - Notað af mörgum sem ekki vilja fjárfesta í EndNote. EndNote fóru í mál við Zotero á sínum tíma vegna þess að þeir notuðu EndNote skrár en málið var látið niður falla og því er Zotero enn að sækja í sig veðrið á þessum markaði. Hægt er að sækja íslenskan þýðingarstaðal með því að smella hér.
http://www.zotero.org/

Nánari upplýsingar

 

R logo

Líklega er R meðal þess hugbúnaðar sem er í mestri þróun í heiminum í dag. Svo til allir háskólar heims nota þennan hugbúnað. Notandinn sér R sem þægilegt og öflugt forritunarmál. Til eru rúmlega 2000 sérstakir hugbúnaðarpakkar fyrir R til að leysa sérstök verkefni. R er mikið notað á fagsviðum eins og fiskilíffræði, sameindalíffræði og reiknilegri líffræði. Flest ef ekki öll námskeið á vegum Stærðfræðiskorar notast við R.

Allar tölvur í tölvuverum hafa R. Þar er hægt að leysa flest verkefni. Sum verkefni eru þó svo frek á reikniafl að hentugra er að nota öflugar Unix eða Linux fjölnotandavélar í vinnsluna. Notandinn þarf þá að tengjast fjölnotandavélinni með SSH.

R - Hugbúnaðinum er oft líkt við SPSS tölfræðiforritið og er ókeypis.
http://www.r-project.org/

 

PSPP

PSPP - Þetta er einnig forrit sem er svipar til SPSS en er einnig frítt.
Hér má finna leiðbeiningar hvernig það er sett inn á MacOS: PSPP leiðbeiningar fyrir MacOS (10.10.5 og 10.11).pdf
http://www.gnu.org/software/pspp/

 

Sage

Sage - Stærðfræðiforrit sem framleiðindur vilja meina að sé ókeypis hliðstæða af Matlab, agma, Maple og Mathematica.
http://www.sagemath.org/

 

Open XML / ODF Translator Add-ins for Office

Open XML / ODF Translator Add-ins for Office - með þessari viðbót getur MS Office skrifað og lesið ODF (OpenDocument Format) skráarformið. Þetta skráarform er staðlað s.kv. ISO/IEC 26300 staðli. Þetta skráarform er mikilvægt vegna þess að það tryggir að hægt sé að lesa og skrifa skjölin jafnvel áratugum seinna. Þetta er hægt með miklu úrvali af hugbúnaði, bæði séreignarhugbúnaði og frjálsum og opnum hugbúnaði.
http://odf-converter.sourceforge.net/download.html

 

PuTTY opið og frjálst forrit

PuTTY - fjölnotendavélin katla.rhi.hi.is og tölvuþyrpingin jotunn.rhi.hi.is eru fyrir alla notendur HÍ. Hægt er að tengjast þessum vélum m.a. með því að nota SSH skipanalínu. Þetta er innbyggt í Mac en fyrir Windows vélar er hægt að nota forritið Putty. 
http://www.chiark.greenend.org.uk/~sgtatham/putty/

 

FileZilla

FileZilla - FileZilla er öflugt forrit sem sér um gagnaflutning. Styður meðal annars FTP, SFTP og FTPS (FTP yfir SSL/TLS).
http://filezilla-project.org/

 

MikTEX

MiKTeX - MikTeX er ritvinnslukerfi sérstaklega hannað fyrir stærðfræðitákn og formúlur.
http://miktex.org/

 

        

Audacity er audio editor sem er þægilegur í notkun.

https://www.audacityteam.org/

 

 

    

Kdenlive er video editor sem margir mæla með.

https://kdenlive.org/en/